Narcissus

Ættkvísl
Narcissus
Yrki form
'Salome'
Íslenskt nafn
Skírdagslilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Hreinhvítur, hjákróna ljósaprikósulit með gula jaðra.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
45-50 sm
Vaxtarlag
Eitt blóm á stilk, hjákróna > 1/3 en < ½ lengd blómblaðanna.
Lýsing
Plönturnar eru 45-50 sm háar. Blómhlífin hreinhvít, stór og skarast, hjákróna djúp, trektlaga, ljós-aprikósugul með gula jaðra. Það þarf að planta þeim þar sem sólin nær að skína á að hluta til svo að besti “bleiki” liturinn komi fram.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
1, Upplýsingar og af umbúðunum og af netinu: Van Engelen Inc.
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Í trjá- og runnabeð, í beð kanta og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til frá 1991 og 1998, laukar keyptir í blómabúð. Þrífast vel (2011).