Narcissus

Ættkvísl
Narcissus
Yrki form
'Cheerfulness'
Íslenskt nafn
Skírdagslilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Rjómahvítur, miðflipar gulir.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
- 35 sm
Vaxtarlag
Um 35 sm há planta. Eitt eða fleiri blóm á stilk. Ofkrýnd blómhlífarblöð eða ofkrýnd hjákróna eða hvort tveggja.
Lýsing
Blómhlífarblöðin rjómahvít, breið og skarast, ofkrýnd, miðjufliparnir gulir, ilma.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
1, Upplýsingar af umbúðum laukanna.
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Í trjá- og runnabeð, í beðkanta og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur frá 1996 og 1988, laukar keyptir í blómabúð. Þrífst vel (2011).