Narcissus

Ættkvísl
Narcissus
Yrki form
'Dutch Master'
Íslenskt nafn
Skírdagslilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Skærgulur, hjákrónan skærgul.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
- 40 sm
Vaxtarlag
Eitt blóm á stilk, hjákróna jafnlöng eða lengri en blómhlífarblöðin. Stönglar sverir.
Lýsing
Blómhlífarblöð skærgul og hjákrónan líka. Hjákrónan víkkar mikið út og er með grófgerða flipa eða rykkt í kantinn.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
1, Upplýsingar af umbúðum laukanna.
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, í beðkanta, undir tré og runna og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta frá 2002, laukar keyptir í blómabúð. Þrífst vel (2011).