Narcissus

Ættkvísl
Narcissus
Yrki form
'Golden Harvest'
Íslenskt nafn
Skírdagslilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Gulur, hjákrónan gul.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
- 40 sm
Vaxtarlag
Eitt blóm á stilk, hjákróna jafnlöng eða lengri en blómhlífarblöðin.
Lýsing
Stórblóma yrki frá því um 1927. Hefur verið kynbætt síðan og er enn ein algengasta trompetliljan á marknaðinum. Blómhlífarblöðin gul, skarast neðst, hjákrónan gul, stór lúðurlaga og lengri en blómhlífin, víkkar mikið út efst, er bylgjuð og smáflipótt í kantinn.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
Upplýsingar á umbúðum laukanna og Jefferson- Brown 1991: Narcissus
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, undir tré eða runna, í beðkanta og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur frá 1996 og 2002, laukar keyptir í blómabúð. Þrífast vel (2011).