Narcissus

Ættkvísl
Narcissus
Yrki form
'Professor Einstein'
Íslenskt nafn
Skírdagslilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Hvítur, hjákróna skær rauðappelsínulit.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
45-50 sm
Vaxtarlag
Eitt blóm á stilk, hjákróna > 1/3 en < ½ lengd blómblaðanna.
Lýsing
Plönturnar eru 45-50 sm háar. Blómin ilma. Blómhlífin er hreinhvít, hjákróna grunn og breið (disklaga) og í fellingum, skær rauðappelsínugul. Þetta verðlaunayrki kom fram rétt eftir 1940.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
1, Upplýsingar og af umbúðunum og netinu: Van Engelen Inc.
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Í beðkanta, í trjá- og runnabeð sem undirgróður og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta frá 1997, laukar keyptir í blómabúð. Þrífast vel (2011).