Narcissus

Ættkvísl
Narcissus
Yrki form
Serola
Íslenskt nafn
Skírdagslilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Gulur, hjákróna dökkappelsínugul.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
Um 35 sm
Vaxtarlag
Plönturnar um 35 sm háar.
Lýsing
Blómið stórt. Blómhlífarblöð gul, hjákrónan stór, dökkappelsínugul og útvíð.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
Upplýsingar á umbúðum laukanna.
Fjölgun
Hliðarlaukar. Laukar lagðir í september á 15-20 sm dýpi.
Notkun/nytjar
Í beðkanta, sem undirgróður undir tré og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta frá 2000, þrífst vel á góðum vaxtarstað.