Narcissus

Ættkvísl
Narcissus
Yrki form
Ipi Tombi
Íslenskt nafn
Skírdagslilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Brennisteinsgulur, hjákróna dökkgul með appelsínugulan kant.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
Um 25 sm
Vaxtarlag
Snemmblómstrandi yrki. Plönturnar um 25 sm háar.
Lýsing
Blómhlífarblöð brennisteinsgul, hjákrónan breið trektlaga, dökkgul með appelsínugulan kant og mjög útvíðan.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
Upplýsingar á umbúðum laukanna og af netinu: Van Engelen Inc.
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, í gróðurskála.
Reynsla
Líklega skammlíf.