Narcissus cyclamineus

Ættkvísl
Narcissus
Nafn
cyclamineus
Yrki form
Tète-à-Tète
Íslenskt nafn
Febrúarlilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Samheiti
(N. × cyclamineus)
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Ljósgul, hjákróna ljósappelsínugul.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
-20 sm
Vaxtarlag
Oftast eitt blóm á stilk, blómhlífarblöð aftursveigð, blóm mynda hvasst horn við stilkinn.
Lýsing
Fleiri en eitt blóm á stöngli. Smávaxnar plöntur, allt að 20 sm háar. Blómhlífarblöðin gul, fremur ljós, aftursveigð, hjákrónan lúðurlaga, löng, jafnlöng og blómhlífarblöð, víkkar lítið út, ljósappelsínugul. Verðlaunayrki sem kom fram um 1949, er mjög blómviljugt.
Uppruni
Yrki.
Harka
6
Heimildir
1, Upplýsingar af umbúðunum og af netinu: Van Engelen Inc.
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Í gróðurskála, í beð með hlýjum veggjum.
Reynsla
Reynsla lítil, líklega skammlíf nema alveg upp við húsveggi, þ.e. vestan-, sunnan- eða austanundir þeim, þar lifir hún árum saman.