Narcissus tazetta

Ættkvísl
Narcissus
Nafn
tazetta
Yrki form
Minnow
Íslenskt nafn
Janúarlilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Samheiti
(N. × tazetta)
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Rjómagulur, hjákróna hreingul.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
18-20 sm
Vaxtarlag
Oftast 3-20 blóm á sterklegum stilk, lauf breið, blómhlífarblöð, útstæð ekki aftursveigð, ilma.
Lýsing
Plönturnar eru 18-20 sm háar. Blómin eru 4-5 á stilk. Blómhlífarblöð bogadregin og broddydd, rjómagul, hjákróna útvíð, fremur grunn, hreingul.
Uppruni
Yrki.
Harka
8
Heimildir
Upplýsingar af netinu: Van Engelen Inc.
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Minnow er sögð góð steinhæðaplanta erlendis, en er líklega best í gróðurskála hérlendis.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta frá 2002, lifir ef til vill aðeins örfá ár (2011).