Nemophila menziesii

Ættkvísl
Nemophila
Nafn
menziesii
Íslenskt nafn
Garðasnót, vinablóm
Ætt
Hunangsjurtaætt (Hydrophyllaceae).
Lífsform
Einær jurt.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Himinblár til hvítur.
Blómgunartími
Júní til september.
Hæð
- 12-130 sm
Vaxtarlag
Allt að 12 sm há jurt, mjúkhærð. Lauf 3,5-6 sm, 9-11 flipa, sjaldan heilrend.
Lýsing
Blómstönglar allt að 30 sm háir, útbreiddir og jarðlægir, sljókantaðir. Blóm allt að 4 sm í þvermál, stök með langan legg, axlastæð. Krónublöð breið öfugegglaga, bogadregin, útstæð, litir mjög breytilegir, hvít til himinblá, oft með hvítan eða gulan blett í miðju eða dökkblá-blettótt eða purpura-svört.
Uppruni
Kalifornía.
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í kanta, í ker, sem þekjuplanta.
Reynsla
Sumarblóm sem þríst vel. Stundum í ræktun í Lystigarðinum.
Yrki og undirteg.
Ýmis yrki eru til, svo sem: --'Alba' með hvít blóm með svarta miðju, 'Crambeoides' með föl blá blóm og purpura æðar en ekki með bletti, 'Coelestis , blómin himinblá með hvíta jaðra, 'Grandiflora' blómin fölblá með hvíta miðju, 'Insignis' blómin eru hreinblá, 'Marginata' bómin hvít með bláa jaðra, 'Occulata' blómin fölblá með purpurasvart auga, 'Purpurea Rosea' blómin purpurableik. ----v. atromaria (Fisch & C.A.Mey.) Chandl. er með hvít blóm með svartpurpura doppur, ---- v. discoidalis (Lem.) Voss. Blómin kopar-purpura með hvíta jaðra.