Nepeta x faassenii

Ættkvísl
Nepeta
Nafn
x faassenii
Íslenskt nafn
Garðanípa
Ætt
Varablómaætt (Lamiaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Ljósgráfjólublár með dekkri dröfnur.
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
30-60 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt. Ófrjór garðablendingur (N. racemosa x N. nepetella) sem líkist klasanípu (N. racemosa), allt að 60 sm hár með stutt dúnhár. Stönglar greinast við gruninn. Lauf allt að 3 sm, mjó-lensulaga til aflöng-egglaga, snubbótt, þverstýfð við grunninn, djúp-bogtennt, silfurgrá, neðri laufin með legg, stoðblöð stutt, bandlensulaga.
Lýsing
Blómin í löngum eða strjálblóma klasa. Bikarinn jafn langur og krónupípan, hvít-dúnhærður, tennur stuttar, hvassyddar. Krónan allt að 12 mm, föl ljósgráfjólublá með dekkri dröfnur.
Uppruni
Garðablendingur.
Harka
3
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, skipting, græðlingar.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í steinhæðir, í fjölæringabeð, sem þekjuplanta, í rósabeð.
Reynsla
Harðgerð jurt, sem þarf gott vaxtarrými, gróskumikil.