Nymphaea alba

Ættkvísl
Nymphaea
Nafn
alba
Íslenskt nafn
Ljósanykurrós
Ætt
Nykurrósaætt (Nymphaeaceae).
Lífsform
Fjölær vatnaplanta.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
10 sm
Vaxtarlag
Kröftugur fjölæringur. Laufin allt að 30 sm í þvermál, breiðegglaga til hálfkringlótt, heilrend, dökkgræn ofan, rauð-græn til gul neðan, mörg saman á jarðstönglunum.
Lýsing
Blómin allt að 20 sm í þvermál, hvít, opnast að deginum, fljóta, aðeins með mjög daufan ilm. Bikarblöð lensulaga, græn með rauðbrúna slikju. Krónublöð 20-25, breiðegglaga. Frjóhnappar gulir til appelsínugulir. Frævur 10-20, fræni gul.
Uppruni
Evrasía, N Afríka.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori, sáning, best í að minnsta kosti 1 m djúpu vatni.
Notkun/nytjar
Í tjarnir, má ekki botnfrjósa.
Reynsla
Meðalharðgerð, þreifst ágætlega í Lystigarðinum og víðar. Þarf gott vetrarskýli til dæmis með froðuplastplötum og reiðingi. Lifði í Lystigarðinum meðan hún naut þessa vetrarskýlis. Dauð fyrir allmörgum árum (2015).