Oenothera fruticosa

Ættkvísl
Oenothera
Nafn
fruticosa
Íslenskt nafn
Næturljós
Ætt
Eyrarrósarætt (Onagraceae).
Lífsform
Tvíær - fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, skjól.
Blómalitur
Djúpgulur.
Blómgunartími
Júní-ágúst.
Hæð
30-80 sm
Vaxtarlag
Tvíær eða fjölær jurt, 30-80 sm há. Stönglar ógreindir eða greinóttir, stinnhærðir til hærðir, með rauða slikju. Grunnlauf 3-12 x 0,5-3 sm, öfuglensulaga til öfugegglaga, tennt, stöngullauf 2-11 x 0,2-5 sm, lensulaga.
Lýsing
Blómstrar að deginum, bikarblöð 0,5-2 sm, krónublöð 1,5-2,5 sm, hálfkringlótt, grunntennt, djúpgul. Hýði kylfulaga (vegna þess að neðsti hlutinn er ófrjór), ekki með kirtilhár.
Uppruni
A N Ameríka.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð með fjölærum jurtum, í steinhæðir.
Reynsla
Skammlíf í ræktun og verður því að halda við með reglulegri skiptingu (eða fjölga með græðlingum) og eiga til vara plöntur í sólreit. Er ekki í Lytigarðinum 2015.
Yrki og undirteg.
Fjöldi yrkja er í ræktun svo sem 'Silvery Moon' 80 sm há jurt, 'Yellow River' með múrsteinsrauða stöngla, 'Youngii' að 50 sm, 'Fireworks' með purpuralitt lauf og fleiri.