Oenothera rosea

Ættkvísl
Oenothera
Nafn
rosea
Íslenskt nafn
Purpuraljós
Ætt
Eyrarrósarætt (Onagraceae).
Lífsform
Fjölær eða einær jurt.
Kjörlendi
Sól, skjól.
Blómalitur
Bleikur til rauðfjólublár.
Blómgunartími
Júní-ágúst.
Hæð
15-60 sm
Vaxtarlag
Upprétt, fjölær, snarphærð planta, stöku sinnum einær, 15-60 sm. Lauf aflöng-egglaga til öfuglensulaga, grunnlauf 2-5 sm, heilrend til gróf fjaðurskipt, laufleggir 1-2 sm. Stöngullauf 1,5-3 sm næstum heilrend til fjaðurskipt, einkum neðst.
Lýsing
Blómskipunin ax, blómpípan 4-8 mm, krónublöð 4-10 x 3-4 mm, bleik til rauðfjólublá. Hýðið kylfulaga, mjókkar smám saman að grunni, gárótt eða með vængi.
Uppruni
N & S Ameríka (Texas til Perú), hefur numið land í Evrópu.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð með fjölærum tegundum, í steinhæðir.
Reynsla
Hefur verið af og til í ræktun í Lystigarðinum en er greinilega skammlíf og best að rækta sem einær væri. Er ekki í Lystigarðinum 2015.