Oplopanax horridus

Ættkvísl
Oplopanax
Nafn
horridus
Íslenskt nafn
Þyrnistokkur
Ætt
Bergfléttuætt (Araliaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Grænhvítur.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
- 400 sm
Vaxtarlag
Stönglarnir mynda oft þétt þykkni. Laufin grunn eða djúp 5-13 flipótt, allt að 35-40 sm, áberandi og óreglulega sagtennt.
Lýsing
Blómskipunin dálítið styttri en laufin, allt að 20 sm, blómskipunarle-leggir allt að 5 m, blómleggir allt að 8 mm. Blóm grænhvít í litlum sveiplíum þyrpingum. Bikarkantur mjög stuttur, ógreinilega 5-tenntur, krónublöð 5, með skálploka. Fræflar 5, eggleg tvíhólfa, stílar oftast lausir hver frá öðrum, innsveigðir efst, standa upp frá flatri skífu. Aldinin steinaldin, rauð, hnöttótt, ögn hliðflöt, slétt, steinar/fræ 2, fræhvítan öll eins. Aldin allt að 7 mm í þvermál.
Uppruni
M & V N Ameríka.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, rótarskot, rótargræðlingar.
Notkun/nytjar
Á útivistarsvæði, í limgerði, sem skjól fyrir ágangi búfjár.
Reynsla
Er í Grasagarði Reykjavíkur og þrífst þar allvel.