Oxalis magellanica

Ættkvísl
Oxalis
Nafn
magellanica
Íslenskt nafn
Hvítsmæra
Ætt
Súrsmæruætt (Oxalidaceae).
Samheiti
Oxalis lactea Hook.
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, skjól.
Blómalitur
Hreinhvítur.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
4 sm
Vaxtarlag
Minnir á litla súrsmæru (O. acetosella), jarðlæg, skriðul, þekjumyndandi, fjölær jurt, allt að 4 sm, jarðstönglar grannir, með hreistur, lauf og blómstönglar endastæðir. Laufleggir 2-4 sm, uppréttir, lítið hærðir. Smálauf 3, 5 x 5 mm, öfughjartalaga, kopargræn, hárlaus.
Lýsing
Blómstöngull stuttur, 1,5-3,5 sm, uppréttur, blómin stök, 1 sm í þvermál, hreinhvít. Bikarblöð ekki með þykkildi.
Uppruni
S Ameríka, Ástralía.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í hleðslur, í fjölæringabeð.
Yrki og undirteg.
'Nelson' fyllt hvít blóm, 'Old man Range' lauf gráleit með bleikum blæ að sumri, blómin hvít