Paeonia cambessedesii

Ættkvísl
Paeonia
Nafn
cambessedesii
Íslenskt nafn
Skálabóndarós
Ætt
Bóndarósarætt (Paeoniaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður og skjólgóður.
Blómalitur
Djúp bleikur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
Allt að 45 sm
Vaxtarlag
Upprétt jurt, stilkar hárlausir, með rauðleita slikju.
Lýsing
Fjölæringur allt að 45 sm hár. Laufin með reglulegu millibili upp eftir stilknum, tvíþrífingruð, allt að 25 sm, dökkgræn, hárlaus að ofan með djúplægum æðastrengjum purpuralit eða fölgræn með purpura flikrum, hárlaus með upphleypta strengi á neðra borði, smálauf lensulaga til oddbaugótt, ydd, allt að 10 × 5 sm, heilrend, blaðleggir allt að 10,5 sm, með rauða slikju. Blóm stök, allt að 10 sm í þvermál. Krónublöð breið-egglaga, djúpbleik, Fræflar allt að 2 sm, frjóþræðir rauðir, frjóhnappar gulir. Frævur 5-8, hárlausar, purpuralitar. Fræhýði allt að 6 sm.&
Uppruni
Baleareyjar í Miðjarðarhafi.
Harka
9
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Þyrpingar, beð, breiður. Talin góð í steinhæð.
Reynsla
Sennilega fremur viðkvæm, lítt reynd enn sem komið er. Hefur verið sáð í Lystigarðinum.