Paeonia lactiflora

Ættkvísl
Paeonia
Nafn
lactiflora
Yrki form
'Festiva Maxima'
Íslenskt nafn
Silkibóndarós
Ætt
Bóndarósarætt (Paeoniaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur-gulhvítur.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
45-60 sm
Vaxtarhraði
Meðalhraðvaxta.
Vaxtarlag
Uppréttir fremur stinnir stönglar, þarf uppbindingu.
Lýsing
Fjölæringur, 45-60 sm hár og 60-90 sm breiður. Fíngerð hreinhvít, ilmandi, fyllt blóm, stundum með rauða bletti við grunn innstu krónublaðanna. Blómin eru stór, oft meira en 20 sm breið. Laufið milligrænt, mikið skipt.
Uppruni
Yrki.
Harka
6
Heimildir
= 1, http://www.wordsendgarden.co.uk, http://www.davesgarden.com, http://www.crocus.co.dk
Fjölgun
Fjölgað með því að skipta rótarhnýði. Skipting að hausti.
Notkun/nytjar
Skrautblómabeð, stakstæð. Eitt vinsælasta, gamla bóndarósaryrkið, með mikinn rósailm. Gróðursetjið bóndarósina við stíg eða inngang þar sem hægt er að njóta ilmsins.Sníðið dauðu blómin af að blómgun lokinni. Bætið áburði sem leysist hægt upp ofan á moldina kring um plöntuna snemma vors, t. d. moltu, safnhaugamold eða gamlan húsdýraáburð. Sveppasjúkdómar geta komið upp í svölu, röku veðri að vorinu. Sníðið þess vegna alla skemmda hluta af plöntunni og úðið það sem eftir stendur með sveppalyfi.Meðalvökvun, vökvið reglulega, ofvökvið ekki.
Reynsla
Tvær plöntur voru keyptar í Lystigarðinn 1995, gróðursettar í beð sama ár og fluttar í annað beð 1990. Báðar þrífast vel og blómstra. Harðgerð, góð til afskurðar.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Viðurkenning: RHS 'Award of Garden Merit'.