Paeonia lactiflora

Ættkvísl
Paeonia
Nafn
lactiflora
Yrki form
'Karl Rosenfield'
Íslenskt nafn
Silkibóndarós
Ætt
Bóndarósarætt (Paeoniaceae).
Lífsform
Fjölæringur.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Dökkvínrauður.
Blómgunartími
Júlí.
Vaxtarhraði
Meðalhraðvaxta.
Vaxtarlag
Fjölæringur, 75-90 sm hár og álíka umfangsmikill.
Lýsing
Blómin eru dökk vínrauð, ilmandi, fyllt. Laufið er djúpskert, milligrænt, rauð-koparlitt snemma vors þegar það er að koma upp.
Uppruni
Yrki.
Harka
6
Heimildir
= http://www.mobot.org, http://www.crocus.co.uk, http://.www.worldsendgarden.co.uk
Fjölgun
Skipting rótarhnýðis að haustinu.
Notkun/nytjar
Í beð.Mælt er með því að skýla ungum plöntum fyrir frostum.Sníðið dauð blóm af að blómgun lokinni. Snemma á vorin er bætt áburði sem leysist hægt upp, ofan á moldina kring um plöntuna, t.d. moltu, safnhaugamold eða gömlum húsdýraáburði. Ef plantan virðist ætla að koðna niður eða ef laufin verða blettótt getur það verið merki um sveppasýking ((Botyritus) þrúgumygla/grásveppur/grámygla). Fjarlægið þá sýkt lauf strax. Að haustinu er svo allt lauf og leggir skornir af og fjarlægðir til að koma í veg fyrir endursmit næsta vor.
Reynsla
Tvær plöntur keypt í Lystigarðinn 1989, gróðursettar í beð sama ár og fluttar í annað beð 1990. Ein planta í viðbót keypt 2003 og gróðursett í beð sama ár. Báðar þrífast vel og blómstra.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Bóndarósir eru dáðar fyrir stór og falleg blóm og gljáandi, djúpskert lauf. Þær eru í miklu uppáhaldi hjá mörgum garðeigendum þrátt fyrir stuttan blómgunartíma og að þær eru viðkvæmar fyrir votviðri.