Paeonia lactiflora

Ættkvísl
Paeonia
Nafn
lactiflora
Yrki form
Duchess De Nemours
Íslenskt nafn
Silkibóndarós
Ætt
Bóndarósarætt (Paeoniaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hreinhvítur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
75-90 sm
Vaxtarlag
Fjölæringur, 75-90 sm hár og álíka umfangsmikill, myndar brúsk.
Lýsing
'Duchesse de Nemours' er kröftug bóndarós með djúpgræn lauf. Blóm eru stór, ilmandi ofkrýnd, hreinhvít, blómknappurinn með græna slikju, ytri krónublöð útstæð og innri krónublöð þétt bylgjuð með gulan grunn.
Uppruni
Yrki.
Harka
6
Heimildir
= http://www.mobot.org, http://www.backyardgardener.com, http://www.worlsendgarden.co.uk
Fjölgun
Fjölgað með því að skipta rótarhnýði. Skipting að hausti.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð. Það getur verið betra að skýla ungum plöntum fyrir frosti.
Reynsla
Keypt í Lystigarðinn 2008, gróðursett í beð sama ár. Þrífst vel.