Paeonia lactiflora

Ættkvísl
Paeonia
Nafn
lactiflora
Yrki form
Bowl of Beauty
Íslenskt nafn
Silkibóndarós
Ætt
Bóndarósarætt (Paeoniaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Rauðbleikur/rósbleikur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
75-90 sm
Vaxtarlag
Upprétt, fjölær jurt 75-90 sm há, sem myndar brúsk.
Lýsing
Lauf milligrænt til dökkgrænt. Bowl of Beauty ber glæsileg blóm, mjög stór af japanskri gerð, þ. e. með fagur rauðbleik/rósbleik ytri krónublöð og með þétta hvíta/rjómalita miðju úr fjölmörgum, mjóum innri krónublöðum (petaloids).
Uppruni
Yrki.
Harka
6
Heimildir
= 1, http://www.worlsendgarden.co.uk, http://www.backyardgardener.com, http://www.shootsgardening.co.uk
Fjölgun
Fjölgað með því að skipta rótarhnýði. Skipting að hausti.
Notkun/nytjar
Fjölæringabeð, stakar eða í þyrpingu.Gróðursetjið bóndarósahnýðin að haustinu, 30-60 sm djúpt, í beð með vel unninni garðmold sem lífrænu efni hefur verið blandað í. (Hafið 2-4 sm moldarlag ofan á brumunum). Bóndarósirnar taka vel við sér við árlega áburðargjöf og ef beinamjöli er bætt við. Það er best að láta bóndarósirnar óhreyfðar, þeim er sjaldan skipt.Bóndarósir geta orðið fyrir sveppsýkingu ((Botyritus) þrúgumygla/grásveppur/grámygla) í vætutíð.Bóndarósir eru meðal langlífustu fjölæringanna, oft að finna í gömlum görðum, hafi þær náð rótfestu lifa þær af vanrækslu. Eitt hundrað ára einstaklingar eru ekki sjaldgæfir.
Reynsla
Keypt í Lystigarðinn 2008, gróðursett í beð sama ár. Þrífst vel.
Yrki og undirteg.
ATHUGASEMD: Athugið að allir hlutar plöntunnar geta valdið magakveisu ef þeirra er neytt.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Almennt um bóndarósir: Bóndarósir eru jurtkenndir fjölæringar sem vaxa upp frá þykku hnýði. Þær eru mjög áhrifamiklar þegar purpuralit, skipt laufin koma upp á vorin. Þau rétta fljótt úr sér og verða græn. Fallegt laufið er á sjálfu sér glæsilegt. Blómin bóndarósanna eru mjög fögur. Þau eru til Plönturnar eru 30-45 sm háar. í þrem gerðum. Einföld, hálffyllt, og af japanskri gerð, þ.e. með eina röð af krónublöðum utan með stórri miðju fylltri af fjölmörgum, mjóum miðjukrónublöðum þ.e. ofkrýnd form. Litur blómanna er oftast frá hvítu, ljós bleiku til brúnrauðu og rauðu.