Paeonia officinalis

Ættkvísl
Paeonia
Nafn
officinalis
Yrki form
Mutabilis Plena
Íslenskt nafn
Bóndarós
Ætt
Bóndarósarætt (Paeoniaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Djúpbleikur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
50-60 sm
Vaxtarlag
Breiðir brúskar stórra laufblaða, blómin stök á löngum stilkum.
Lýsing
Laufin tvíþrífingruð, djúpflipótt endasmáblað, hárlaus, gljáa.Blómin 9-13 sm í þvermál, fyllt, djúpbleik, verða ljósbleik með aldrinum.
Uppruni
Yrki.
Harka
8
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting eða rótargræðlingar að hausti, sáning.
Notkun/nytjar
Stakstæð, í skrautblómabeð, í raðir, í þyrpingar.
Reynsla
Gömul planta í Lystigarðinum, þrífst vel og blómstrar árlega.