Papaver bracteatum

Ættkvísl
Papaver
Nafn
bracteatum
Íslenskt nafn
Risasól
Ætt
Draumsóleyjarætt (Papaveraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Rauð með purpura blett.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
80-100 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 100 sm há. Stönglar uppréttir, ógreindir. Grunnlauf allt að 45 sm, fjöðruð efst, fliparnir lensulaga eða aflangir, sagtenntir. Stöngullauf smá. Blómstönglar með aðlæg, hvít broddhár, stoðblöð allt að 5 sm, 2 efst neðan við blómin, djúpskert.
Lýsing
Blómin 10 sm í þvermál eða breiðari. Bikarblöð 2, sköruð, íhvolf, hvít ofan, græn neðan. Krónublöðin 4, öfugegglaga, rauð með purpura blett við grunninn. Frænisskífa 16-18 geisla. Aldin öfugegglaga-hnöttótt, hárlaus, bláleit.
Uppruni
Kákasus, Litla Asía.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, rótargræðlingar eftir blómgun, skipting, gera það varlega en tekst þó ekki alltaf.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, í raðir, í þyrpingar. Risavalmúarnir þurfa stuðning og gott að nota 40-50 sm net til stuðnings. Skipta fremur að hausti til eftir blómgun.
Reynsla
Hefur reynst vel í ræktun hérlendis. Gömul í ræktun í Lystigarðinum, þrífst vel.
Yrki og undirteg.
'Beauty of Livermer' er mikið ræktuð hérlendis (fræekta)