Papaver rhoeas

Ættkvísl
Papaver
Nafn
rhoeas
Íslenskt nafn
Deplasól
Ætt
Draumsóleyjarætt (Papaveraceae).
Lífsform
Einær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Skærrauður.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
- 90 sm
Vaxtarlag
Einær jurt, allt að 90 sm há. Blómstilkar uppréttir, greinóttir, stinnhærðir, sjaldan hárlausir. Lauf fjaðurskipt eða fjaðurflipótt, fliparnir lensulaga, langyddir, allt að 15 sm langir.
Lýsing
Blómin stök, allt að 7,5 sm í þvermál. Bikarblöð stinnhærð. Krónublöð bogadregin til egglaga, oftast heilrend, stöku sinnum bogtennt til framjöðruð, skærrauð, stundum með svartan blett við grunninn. Frænisskífa 5-18 geisla. Aldin hálfhnöttótt, allt að 2 sm, hárlaus.
Uppruni
Tempraða beltið á norðurhveli.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í blómaengi.
Reynsla
Hefur stöku sinnum verið í Lystigarðinum, en er þar ekki 2015.