Penstemon digitalis

Ættkvísl
Penstemon
Nafn
digitalis
Íslenskt nafn
Akurgríma
Ætt
Grímublómaætt (Scrophulariaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur, stundum með mjög ljósa, fjólubláa slikju.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 150 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, stönglar allt að 150 sm háir, oft með purpura slikju, stundum fremur bláleit, oftast hárlaus og gljáandi. Lauf 10-15 sm, aflöng til aflöng-lensulaga eða mjó-þríhyrnd, heilrend eða tennt, hárlaus neðan.
Lýsing
Blómskipunin líkist punti, greinarnar uppréttar eða uppsveigðar, 10-30 sm, kirtil-dúnhærðar. Bikar 6-7 mm. Króna 2,3-3 sm, hvít eða með mjög ljósa fjólubláa slikju, oftast með purpura hunangsbletti að innan verðu, pípan víkkar snögglega út nálægt miðjunni. Gervifræflar loðnir.
Uppruni
N-Ameríka (Main til S Dakóta og suður til Texas).
Harka
3
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, í stórar steinhæðir.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sm sáð var til 2010 og gróðursett í beð 2011.