Penstemon glaber

Ættkvísl
Penstemon
Nafn
glaber
Íslenskt nafn
Gljágríma
Ætt
Grímublómaætt (Scrophulariaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Djúpblár til indígóblár, fölblár til hvítur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
50-65 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt með greinóttan trékenndan stöngulstofn, stönglar 50-65 sm háir, einn eða margir, uppréttir, hárlausir. Grunnlauf lensulaga eða öfugegglaga, minni en stöngullaufin eða engin. Stöngullauf 3-12 x 1-3 sm, bandlensulaga til öfugegglaga, legglaus, til breiðgreipfætt.
Lýsing
Blómskipunin lík klasa, samþjöppuð, hliðsveigð, 10-25 sm. Bikar 2-4 mm, flipar egglaga, breið-kringluleitir til stutt-oddregnir í oddinn. jaðrar með breiðan himifald og trosnaðir. Króna 2,5-3,5 sm, bakhluti djúpblár til indigóblár sjaldan bleikur, framhluti fölblár til hvítur, með brúnrauð hunangsbletti innan, hárlaus innan, gin í meðalagi útflatt, flipar á efri vör framstæðir, flipar á neðri vör útstæðir til aftursveigð. Gervifræflar ná ekki fram úr gininu eða aðeins lítið eitt, oddur hárlaus eða lítið eitt föl gulhærð. Aldin 10-15 mm.
Uppruni
N Ameríka (Wyoming).
Harka
3
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð.
Reynsla
Er ekki í Lystigarðinum 2015.