Petasites albus

Ættkvísl
Petasites
Nafn
albus
Íslenskt nafn
Fákafífill
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Gulhvítur.
Blómgunartími
Maí.
Hæð
30-40 sm
Vaxtarlag
Lauf 14-40 sm í þvermál, hringlaga-hjartalaga, reglulega flipótt, flipar tenntir, grunnflipar beinast oftast út á við, hárlaus ofan, ullhærð neðan. Stöngullauf allt að um 5 sm, 5-16, lykja stöku sinnu um stöngulinn neðst, stundum með ófullkomna blöðku.
Lýsing
Blómskipunin 15-30 sm, karfan skífulaga, karlkörfur 5-40, kvenkörfur 13-45, reifar allt að 12 mm, nærreifar fölgrænar, heilrendar, kirtil-dúnhærðar, smáblóm gulhvít.
Uppruni
N & M Evrópa til V Asíu.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í blómaengi, í sumarbústaðaland, sem undirgróður í skógi, við tjarnir.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta af þessari tegund sem sáð var til 1988, þrífst vel. Harðgerð tegund en mjög varasöm!!! í skrautblómabeð og/eða litla garða, þar sem tegundin er víðskriðul og erfitt að uppræta hana.