Petasites hybridus

Ættkvísl
Petasites
Nafn
hybridus
Íslenskt nafn
Hrossafífill
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Lillableikur eða gulur.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
- 100 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, allt að 100 sm há. Laufin allt að 60 sm í þvermál, kringlótt-hjartalaga, flipótt, grunnflipar samanluktir, lítið eitt lóhærð á neðra borði, óreglulega tenntir. Stöngullauf allt að 6 sm, 5-20 á karl plöntum, 17-35 á kvenplöntum, neðri laufin greipfætt, stundum með ófullkomna blöðku.
Lýsing
Körfur skífulaga, karlkörfur 16-55, kvenkörfur 25-130, karlreifar allt að 9 mm, kvenreifar minni, nærreifar heilrendar með purpura slikju, lítið eitt hærðar við grunninn. Smáblóm lilla-bleik eða gul.
Uppruni
Evrópa, N og V Asía.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í sumarbústaðaland, í skógarbotn, í blómaengi.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein gömul planta, sem þrífst vel. Harðgerð tegund, algert illgresi sem í raun og erfitt að uppræta nái hún einhversstaðar rótfestu, mjög varhugaverð í litla garða !