Petrorhagia saxifraga

Ættkvísl
Petrorhagia
Nafn
saxifraga
Íslenskt nafn
Bergnellika
Ætt
Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae)
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur, bleikur.
Blómgunartími
September.
Hæð
- 40 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, næstum hárlaus, myndar breiður og verður allt að 40 sm há. Laufin bandlaga, með kjöl.
Lýsing
Blómskipunin strjálblóma skúfur. Utanbikarblöð 4, himnukennd, hálf lengd bikarsins. Bikar 3-6 mm, með 5 græna kanta. Bikarblöð 5-10 mm, fölbleik með djúpbleikari æðar, með skörðótta krónutungu og stutta nögl.
Uppruni
S og M Evrópa.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir.
Reynsla
Ekki í Lystigarðinum 2015.
Yrki og undirteg.
Yrkið 'Alba' er með hvít blóm, 'Alba Plena' er með hvít, ofkrýnd blóm, 'Lady Mary' er allt að 8 sm hátt yrki, blómin ofkrýnd, mjúkbleik, 'Pleniflora Rosea' er lágvaxin, blómin ofkrýnd, bleik, 'Rosea' blómin ljósbleik, 'Rosette' þéttvaxnari blómin fyllt, bleik.