Philadelphus intectus

Ættkvísl
Philadelphus
Nafn
intectus
Íslenskt nafn
Silfurkóróna
Ætt
Hindarblómaætt (Hydrangaceae).
Samheiti
Philadelphus intectus Beadle v. pubigerus Hu
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól til hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Hæð
- 5 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni, allt að 5 m hár. Börkurinn silfurlitur, flagnar ekki. Ársprotar hárlausir. Axlabrumin hulin.
Lýsing
Lauf blómlausra greina egglaga til aflöng-oddbaugótt, 6-10 × 4-6 sm, á greinum með blóm eru laufin 3-5 × 1,5-3,5 sm, öll með bogadreginn grunn eða snubbóttan, odddregin, hárlaus eða sjaldan hærð á neðra borði með fáeinar tennur sem vita fram á við á jöðrunum. Blómin 5-9 saman í klösum, disklaga, um 3 sm í þvermál. Bikarblöð egglaga með hala. Eggleg hárlaus, fræflar 38 talsins, skífa og stíll hárlaus. Fræ með langan hala.
Uppruni
SA Bandaríkin.
Harka
Z5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, græðlingar, sveigræðsla.
Notkun/nytjar
Í trjá og runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu sem sáð var til 2010, er í sólreit 2013.