Philadelphus lewisii

Ættkvísl
Philadelphus
Nafn
lewisii
Íslenskt nafn
Hærukóróna
Ætt
Hindarblómaætt (Hydrangaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
-3 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni allt að 3 m hár. Börkur greina á öðru ári er brúngulur eða kastaníubrúnn, flagnar ekki, en er með þverstæðar sprungur. Ársprotar hárlausir, en randhærð á hnjánum. Axlabrumin hulin.
Lýsing
Lauf 4-5,5 × 2-3,5 sm, grunnur bogadreginn, laufin hvassydd, snubbótt eða ögn langydd, meira eða minna heilrend eða ógreinilega fíntennt með mjög lítið af löngum grófum hárum á æðastrengjunum á efra borði og með hárskúfa í hornum æðastrengjanna á neðra borði, jaðrar randhærðir. Blómin 5-11 í klasa, krónublöðin fjögur mynda kross, blómin 3-4,5 sm í þvermál. Bikarblöð egglaga, 5-6 × 3 mm, breið við grunninn. Fræflar 28-35 talsins, þeir lengstu eru hálf lengd krónublaðanna. Fræflar og skífur hárlaus, stíll styttri en lengstu fræflarnir, hárlaus, óskiptur eða ögn skiptur ofantil. Fræin með langan hala.
Uppruni
Vestur N-Ameríka.
Harka
Z5
Heimildir
= 1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning, græðlingar, sveiggræðsla. Fræ þarf 1 mánaðar forkælingu. Sáið í febrúar á bjartan stað í sólreit. Þegar smáplönturnar eru orðnar nógu stórar til að handfjatla þær eru þeim plantað hverri í sinn pott og hafðar í gróðurhúsi næsta vetur. Gróðursetjið þær á framtíðastaðinn næsta vor eða snemmsumars þegar frosthætta er liðin hjá. Sumargræðlingar, 7-10 sm langir, eru teknir af hliðagreinum í ágúst og settir í skyggðan sólreit. Gróðursetjið að vorinu. Flestir rætast. Vetrargræðlingar , 15-20 sm langir með hæl eru teknir í desember (erlendis) og settir í skjólgott beð utan dyra. Margir þeirra rætast. Sveiggræðsla að sumrinu er mjög auðveld.
Notkun/nytjar
Í blönduð beð, í kanta. Auðræktaður runni, þrífst í hvaða meðalfrjóum jarðvegi sem er. Þolir magran jarðveg. Lifir í hálfskugga en blómstrar miklu meira í miklu sólskini. Mjög skrautleg planta með ilmandi blóm.Þolir allt að 15°C.Blómin eru með sætan appelsínuilm.Runninn þolir vel snyrtingu Það er hægt að klippa þriðja hvern sprota niður við jörð árlega og hvetja þar með til vaxtar nýrra greina og meiri blómgunar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, sem sáð var til 2010, önnur var gróðursett í beð 2013 en hin er í sólreit 2013. Meðalharðgerður-harðgerður. Hefur þrifisr vel í garðinum og blómgast árlega.