Philadelphus microphyllus

Ættkvísl
Philadelphus
Nafn
microphyllus
Íslenskt nafn
Fjallakóróna*
Ætt
Hindarblómaætt (Hydrangaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól til hálfskuggi.
Blómalitur
Hreinhvítur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
- 1-1,2 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, lágvaxinn, uppréttur, fíngerður runni, allt að 1 m hár. Ársprotar með aðlæga dúnhæringu. Börkur á annars árs greinum kastaníubrúnn, glansandi, fer fljótlega að flagna. Axlabrumin hulin.
Lýsing
Lauf 1-1,5 × 0,5-0,7 sm, egglaga-oddbaugótt eða stundum lensulaga, heilrend og randhærð, hárlaus eða verður hárlaus ofan, með mjúkan hárflóka á neðra borði, snubbótt við grunninn, hvassydd eða snubbótt. Blómgreinar 1,5-4 sm, með 1 eða 2 hreinhvít blóm, sem ilma mjög mikið. Blómin eru með 4 krónublöð sem mynda kross og eru um 3 sm breið. Bikarblöðin eru lensulaga. Fræflar um 32 talsins. Fræin eru með mjög stuttan hala.
Uppruni
SV Bandaríkin.
Harka
Z6
Heimildir
= 1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning, græðlingar, sveiggræðsla.Fræ þarf 1 mánaðar forkæling. Sáið í febrúar á bjartan stað í sólreit. Þegar smáplönturnar eru orðnar nógu stórar til að handfjatla þær eru þeim plantað hverri í sinn pott og hafðar í gróðurhúsi næsta vetur. Gróðursetjið þær á framtíðastaðinn næsta vor eða snemmsumars þegar frosthætta er liðin hjá. Sumargræðlingar, 7-10 sm langir, eru teknir af hliðagreinum í ágúst og settir í skyggðan sólreit. Gróðursetjið að vorinu. Flestir rætast. Vetrargræðlingar , 15-20 sm langir með hæl, eru teknir í desember (erlendis) og settir í skjólgott beð utan dyra. Margir þeirra rætast. Sveiggræðsla að sumrinu er mjög auðveld.
Notkun/nytjar
Í runnabeð, sem stakstæður runni. Auðræktaður runni, þrífst í hvaða meðalfrjóum jarðvegi sem er. Þolir magran jarðveg. Lifir í hálfskugga en blómstrar miklu meita í miklu sólskini. Mjög skrautleg planta með ilmandi blóm. Þolir allt að 20°C. Blómstrar oft lítið þegar sumrin eru svöl. Blómin eru með sætan ananasilm. Runnin þolir vel snyrtingu Það er hægt að klippa 3 hvern sprota niður við jörð árlega og hvetja þar með til vaxtar nýrra greina og meiri blómgunar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2002 og gróðursett í beð 2004 og önnur planta sem sáð var til 2009, er í sólreit 2013.