Phlox subulata

Ættkvísl
Phlox
Nafn
subulata
Íslenskt nafn
Garðaljómi
Ætt
Jakobsstigaætt (Polemoniaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikur, ljósgráfjólublár eða hvítur.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
20-50 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt sem myndar þéttar breiður eða þúfur, allt að 50 sm há, mjúkhærð til smámjúkhærð, hárin úr mörgum frumum. Lauf 6-20 x 1-1,5 mm, oddbaugótt til bandlaga, randhærð við grunninn, broddydd.
Lýsing
Blómskipunin blómafár, endastæður, skúfur með stoðblöð. Blómin á 3-15 mm löngum blómskipunarlegg. Bikar 6-8 mmm, með smáa þyrna, flipar lensulaga-odddregin. Krónan 1-1,3 sm, bleik til ljósgráfjólublá eða hvít, flipar 7-10 mm, framjaðraðir. Fræflar næstum útstæðir til inniluktir í pípunni.
Uppruni
Bandaríkin (New York til Maryland og Michigan).
Harka
3
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, græðlingar eftir blómgun að vori.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í hleðslur.
Reynsla
Fremur viðkvæm og stundum skammlíf. Ágætar til afskurðar, skýla þar sem snjóalög eru lítil. Ekki í Lystigarðinum 2015.
Yrki og undirteg.
'White Delight' Laufin fölgræn, blómin hreinhvít. Allar lágvaxnar Phlox tegundir og blómstra snemma.