Physocarpus opulifolius

Ættkvísl
Physocarpus
Nafn
opulifolius
Yrki form
´Diabolo
Íslenskt nafn
Garðakvistill
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Vex best í fullri sól á norðlægum svæðum.
Blómalitur
Bleikhvítur.
Blómgunartími
Sumar.
Hæð
1-2 m
Vaxtarlag
Líkur tegundinni, uppréttur með útbreiddar greinar, dálítið grófgerður, lauffellandi runni, sem er náskyldur ættkvíslinni Spiraea. Runninn verður venjulega 1,2-2,4 m (sjaldnar allt að 3 m) hár. Börkurinn flagnar af gömlum greinum, rifnar af í ræmum og skilur eftir allmörg lög af rauðleitum til ljósbrúnum innri berki. Börkurinn er mjög fallegur að vetrinum en er yfirleitt falinn bak við laufið að sumrinu.
Lýsing
Blómin lítil, bleik-hvít, með fimm krónublöð, blómin eru í þéttum, flötum, kúlulaga, 2,5-5 sm breiðum hálfsveip, sem kemur síðla vors. Að blómgun lokinni koma drúpandi klasar af rauðleitum aldinum (íflötum fræhýðum). Laufin eru egglaga-kringluleit, oftast 3-5 flipótt, allt að 10 sm löng, dökkpurpura. Purpuralit laufin hafa tilhneigingu til að verða græn í heitum sumrum í heitu loftslagi þegar líður á sumarið.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Engir alvarlegir sjúkdómar eða skordýraplágur hrjá plöntuna.
Harka
2
Heimildir
= 1, http://www.missouribotanicalgarden.org
Fjölgun
Sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Stakar plöntur eða í þyrpinga, í kanta á runnabeðum, í limgerði, í skjólbelti, Kröftugur runni sem virðist geta vaxið vel við erfiðar aðstæður. Snyrt eftir þörfum strax að blómgun lokinni. Það má klippa plöntuna alveg niður að vetrinum, ef ætlunin er að yngja hana upp.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1994 og gróðursett í beð 2001 og önnur sem sáð var til 2000 og gróðursett í beð 2004 og ein sem var sáð til 2005, er í sólreit. Óvíst er hvort plönturnar séu undir réttu nafni.