Phyteuma charmelii

Ættkvísl
Phyteuma
Nafn
charmelii
Íslenskt nafn
Klausturstrokkur
Ætt
Bláklukkuætt (Campanulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Blár.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 30 sm
Vaxtarlag
Hárlaus, upprétt, allt að 30 sm há fjölær jurt. Grunnlaufin egglaga-hjartalaga, sagtennt með langan legg. Stöngullaufin lensulaga, óreglulega tennt.
Lýsing
Blómin í egglaga til hnöttóttum kollum. Króna bogsveigð í knúppnum, blá.
Uppruni
Appennínafjöll.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori eða að blómgun lokinni eða með sáningu að hausti.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beðkanta.
Reynsla
Reyndist vel í Lystigarðinum, en er þar ekki nú (2015), hefur verið sáð aftur.