Phyteuma humile

Ættkvísl
Phyteuma
Nafn
humile
Íslenskt nafn
Svarðstrokkur
Ætt
Bláklukkuætt (Campanulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Djúpblár-fjólublár.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 15 sm
Vaxtarlag
Þýfð, upprétt jurt, allt að 15 sm há, hárlaus. Grunnlaufin í þéttri hvirfingu, band-lensulaga, hárlaus. Stöngullauf fá, mjó-bandlaga.
Lýsing
Blómskipunin kúlulaga, stoðblöð lensulaga, oftast sagtennt. Krónan djúpblá til fjólublá.
Uppruni
Sviss.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori eða að blómgun lokinni eða með sáningu að hausti.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beðkanta.
Reynsla
Er ekki í Lystigarðinum 2015, en hefur verið sáð. Harðgerð jurt.
Yrki og undirteg.
Svarðstrokkur er mjög líkur hvolfstrokk (P. hemisphaericum) sem þó er allur mun stærri, 10-30 sm hár.