Phyteuma ovatum

Ættkvísl
Phyteuma
Nafn
ovatum
Íslenskt nafn
Baugastrokkur
Ætt
Bláklukkuætt (Campanulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Dökkfjólublár.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 60 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt með upprétta stöngla, allt að 60 sm há. Grunnlauf egglaga til djúp hjartalaga, langydd, tennt með langan legg, stöngullauf mjórri.
Lýsing
Blómskipunin þétt, öfugegglaga, stoðblöð egglaga, útstæð til snögglega niðursveigð. Krónan dökkfjólublá.
Uppruni
Alpafjöll.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori eða að blómgun lokinni eða með sáningu að hausti.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í blómaengi með snöggu grasi, í beðkanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2009 og gróðursett í beð 2015.