Phyteuma sieberi

Ættkvísl
Phyteuma
Nafn
sieberi
Íslenskt nafn
Klettastrokkur
Ætt
Bláklukkuætt (Campanulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Djúpblár.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 10 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, upprétt eða uppsveigð, allt að 10 sm há. Grunnlauf egglaga til mjó-oddbaugótt, bugðótt. Stöngullauf egglaga, legglaus.
Lýsing
Blómskipunin kúlulaga. Stoðblöð lensulaga, sagtennt. Krónan djúpblá.
Uppruni
Alpafjöll.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori eða að blómgun lokinni eða með sáningu að hausti.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beðkanta.
Reynsla
Er ekki til í Lystigarðinum (2015) en hefur verið sáð 2011. Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur.