Phyteuma spicatum

Ættkvísl
Phyteuma
Nafn
spicatum
Íslenskt nafn
Klukkustrokkur
Ætt
Bláklukkuætt (Campanulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur, rjómalitur, blár.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
50-80 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, upprétt, hárlaus, allt að 80 sm há. Grunnlauf egglaga-hjartalaga, sagtennt. Stöngullauf legglauf.
Lýsing
Blómskipunin þétt ax. Stoðblöð bandlaga. Krónan hvít, rjómalit eða blá.
Uppruni
Tempraði hluti Evrópu
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori eða að blómgun lokinni eða með sáningu að hausti.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beðkanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1991 og gróðursett í beð 2004, þrífst vel.