Picea abies

Ættkvísl
Picea
Nafn
abies
Íslenskt nafn
Rauðgreni
Ætt
Þallarætt (Pinaceae).
Samheiti
Syn.: P. excelsa (Lam.) Link.
Lífsform
Sígrænt tré.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Kk reklar gulir, kvk reklar rauðir.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
10-20 m
Vaxtarlag
Tré, 30-50 m hátt í heimkynnum sínum, einstofna, stofn beinn, súlulaga, allt að 2 m í þvermál, börkur rauðbrúnn til grár, flagnar af í þunnum hreistrum. Króna oddmjó-keilulaga, þétt. Aðalgreinar láréttar eða bogna niður á við, með ± uppsveigða enda, smágreinar neðan á aðalgreinum hanga beint niður (kemur betur og betur í ljós með aldrinum).
Lýsing
Ársprotar brúnir til rauðgulir, hárlausir til lítið eitt hærðir. Brum mjókeilulaga, ydd, ljósbrún, kvoðulaus. Barr skiptist eins og kambur á neðri hlið greina, með loftaugu á öllum 4 hliðunum, dökkgræn. Könglar hangandi, sívalir 10-15 sm langir, 3-4 sm breiðir, ungir grænir eða rauðir hreistur fremur hörð, tígullaga mjókka í efri endann, snubbótt í oddinn eða framjöðruð.
Uppruni
N & M Evrópa, fjöll M Evrópu.
Harka
4
Heimildir
= 1,2,7
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar í þokuúðum.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakstæð tré, í raðir, í limgerði, í skógrækt.
Reynsla
Þrífst vel í Lystigarðinum, kelur ekkert. Harðgerð og þolin en þurftafrek tegund. Skýla þarf ungplöntum í uppeldi. Elstu tré á Þingvöllum frá 1899, í Ræktunarstöð Norðurlands frá 1903, í Hallormsstað 1908. Rótarkerfið er grunnt og trjám því hætt við rótarveltum í roki. Ræktað sem skógartré á stöðum fjarri sjó á skjólsælum stöðum víða um land.
Yrki og undirteg.
Mörg yrki, t.d. Picea abies 'Nidiformis' - sátugreni - með tenntar nálar, hefur staðið sig vel í garðinum. Picea abies ssp. obovata (Ledeb.) Hultén - Síberíugreni , vetrargreni - rétt nafn = Picea obovata, með útbreiðslu norðarlega í tempraða beltinu, könglar aðeins 6-8 sm að lengd, spólulaga til egglaga, köngulhreistur öfugegglaga með ávölum stundum tvíyddum enda (ekki trosnuðum), árssprotar alveg þétthærðir og nálar 10-1 8mm að lengd. Yfir 100 yrki í ræktun erlendis sem lítt eða ekki eru reynd hérlendis en ættu að ganga þokkalega. 'Acrocona', 'Ohlendorffii' og 'Viminalis' eru þó í uppeldi i garðinum.
Útbreiðsla
Þroskaði fræ:Mjög mikilvægt skógartré, þrífst vel þar sem loftraki er mikill og fremur svalt, í góðum dálítið rökum leirjarðvegi eða leirbornum sandi. Hefur lengi verið í ræktun.