Picea abies

Ættkvísl
Picea
Nafn
abies
Yrki form
Pseudoprostrata
Íslenskt nafn
Rauðgreni
Ætt
Þallarætt (Pinaceae).
Samheiti
P. abies v. pseudo orostrata (Hornib.) Hornib., P. execelsa v. prostrata Hornib. non Schneid.
Lífsform
Sígrænn dvergvaxinn runni.
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi.
Blómalitur
Kk reklar gulir, kvk reklar rauðir.
Blómgunartími
Maí-júní.
Vaxtarlag
Dvergform, mjög flatvaxið og breiðvaxið, liggur útbreitt á jöðrum.
Lýsing
Ársprotar grófir samt mjög sveigjanlegir í óreglulegum knippum, allmörg í sama plani. Ársvöxtur 1-7 sm. Brum kúlulaga, ljósbrún í óreglulegum grúppum á greinaendunum, líka breytileg að stærð. Barrnálar mislangar, misstórar og vísa í ýmsar áttir, við greinagrunn yfirleitt 8 mm langar, um miðja grein 12 mm og við greinaendann aftur 8 mm langar, grófar, bogadregnar, í þversnið með um 4 loftaugaraðir á hvorri hlið.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
7
Fjölgun
Sumargræðlingar með þokuúðun.
Notkun/nytjar
Í blönduð beð, í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem keypt var 1988, kól nokkuð fyrsta árið en ekki síðan. Þrífst vel.
Útbreiðsla
Var dreift frá Hillier fyrir 1923 undir nafninu P. abies v. procumbens.