Picea engelmanii

Ættkvísl
Picea
Nafn
engelmanii
Íslenskt nafn
Blágreni
Ætt
Þallarætt (Pinaceae).
Lífsform
Sígrænt tré.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Kk reklar gulir, kvk reklar rauðir.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
-20 m
Vaxtarhraði
Hægvaxta.
Vaxtarlag
Hávaxið tré, sem verður 20-40 m hátt eða nokkru hærra í heimkynnum sínum. Krónan mjög þétt, keilulaga eða þá grönn og oddmjó. Börkur þunnur, ljós brúnn, kvoðugur. Greinar í þéttum krönsum, láréttar. útbreiddar eða vita ögn upp á við.
Lýsing
Ársprotar gulbrúnir og mjög fínir, kirtilhærðir en orðin hárlausir eftir um 3 ár. Brum keilulaga, brún. Brumhlífar aðlægar, þær efri bogadregnar, þær neðri langyddar. Barrnálar grannar, 15-25 mm langar, beinar eða dálítið bognar, auðsveigðar (ekki stinnar eins og hjá P. pungens!), blágrænar til stálbláar. Nálarnar eru ferkantaðar í þversnið og eru að ofan með 2-4 loftaugaraðir og að neðan með 3-6, þær eru sumpart geislastæðar, sumpart með skiptingu neðan á greininum, lykta illa ef þær eru núnar. Könglar eru næstum legglausir egglaga til sívalir, 4-8 sm langir, 2,5-3 sm breiðir, ljósbrúnir en grænrauður áður en þeir ná fullum þroska. Köngulhreistur þunn eins og pappír, tígullaga-aflöng, mjókka að oddi og eru trosnuð þar, oddur snubbóttur og smá tenntur. Hreisturblöðkur smáar, ljósgular. Fræ svört, 1,5 mm löng með 10 mm löngum væng.
Uppruni
Vestur N Ameríku. Háfjallatré með mikla útbreiðslu, er að finna milli 1000 og 4000 m h.y.s.
Harka
3
Heimildir
= 1,7,9
Fjölgun
Sumar-haustgræðlingar í þokuúðun, sáning, vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakstæð tré, í skjólbelti, í skógrækt.
Reynsla
Harðgerð tegund sem plantað hefur verið í skógarreiti og garða víða um landið. Elstu tré sennilega á Hallormsstað (ca. 1903). Verður allt að 500 ára gamalt. Ráðlegt er að skýla ungplöntum fyrstu árin. Í Lystigarðinum er eitt tré til, sem hefur þrifist vel, en orðið fyrir ágangi barrlúsa 2006-2007. Ekkert kal.
Yrki og undirteg.
Fjölmörg yrki í ræktun t.d. 'Glauca' með áberandi blágrænt barr (C-flöt - 1991). Yrki sem eru enn óreynd má nefna 'Argentea' með silfrarðar gráar barrnálar, 'Fendleri' með slútandi greinar, 'Microphylla' lágvaxið, runnkennt og þétt og 'Snake' með óreglulega uppréttar greinar.
Útbreiðsla
Þrífst í alls konar jarðvegi ef rakinn er nægur; hægvaxta.