Picea glehnii

Ættkvísl
Picea
Nafn
glehnii
Íslenskt nafn
Glitgreni
Ætt
Þallarætt (Pinaceae).
Lífsform
Sígrænt tré.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Kk reklar gulir, kvk reklar rauðir.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
10-15 m
Vaxtarlag
Hávaxið tré, allt að 30 m hátt í heimkynnum sínum eða hærri. Króna mjó-keilulaga. Börkur súkkulaðibrúnn (greinist á því frá öllum öðrum Picea-tegundum), flagnar af í þunnum hreistrum. Greinar mjóar og stuttar.
Lýsing
Greinar grannar og stuttar. Árssprotar rauðleitir í fyrstu síðar rauðir með þétt, stinn hár, aðallega í grópunum. Brum egg-keilulega, kvoðug, brún, endabrum aðalgreina með sýllaga brumhlífar neðst, aðlægar, brumendar standa fram úr brumhlífunum. Barrnálar þéttstæðar ofan á greinunum, 8-15 mm langar, skærgrænar ofan og oftast með 1 loftaugaröð; daufgrænar neðan og með (2-)3(-5) loftaugaraðir; snubbóttar. Á ungum plöntum eru þær samt oftast yddar, ferkantaðar í þversnið, jafnháar og þær eru breiðar. Könglar sívalir-aflangir, 4-8 sm langir, fullþroska gljáandi, brúnir. Köngulhreistur bogadregin og trékennd, heilrend til dálítið trosnuð. Fræ með væng, 1 sm löng.
Uppruni
Sakalin, Japan (Hokkaido).
Harka
4
Heimildir
= 1,7,9
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar í þokuúðun, vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakstæð tré, í skjólbelti, í limgerði, í beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til eitt tré sem sáð var til frá 1994, gróðursett í beð 2004.
Útbreiðsla
Mjög harðgert, kemur líka fyrr í köldum og blautum jarðvegi í heimkynnum sínum. Ársprotar koma seint. Auðþekkt á rauðum, hærðum unggreinum.