Picea x lutzii

Ættkvísl
Picea
Nafn
x lutzii
Íslenskt nafn
Sitkabastarður, hvítsitkagreni
Ætt
Þallarætt (Pinaceae).
Samheiti
(P. glauca × P. sitchensis)
Lífsform
Sígrænt tré.
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi.
Blómalitur
Kk reklar gulir, kvk reklar rauðir.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
Allt að 20 m
Vaxtarlag
Tré allt að 20 m há. Bolur allt að 0,3 m í þvermál. Barr og könglar millistig milli þess sem gerist hjá foreldrunum.
Lýsing
Ársprotar gulleitir, hárlausir. Nálar gormstæðar, 10-16 mm langar, bandlaga u.þ.b. 1,5 mm breiðar og næstum jafn þykkar, yddar, dálítið ferkantaðar eða ögn kjalaðar bæði ofan og neðan, að ofan með 2-4 og neðan með 5-8 loftaugaraðir. Könglar lang-spólulaga, 3-6 sm langir, 2,5-3 sm breiðir. Köngulhreistur bogadregin, 12-14 mm löng, 10-11 mm breið, gulbrún, jaðar tenntur. Hreisturblöðkur egglaga, 4-5 mm langar, 2-3 mm breið, snubbótt, tennt.
Uppruni
S Alaska (Kenaiskagi).
Sjúkdómar
Sitkalús, greniköngullingur.
Harka
3
Heimildir
1,7
Fjölgun
Sáning, sumar og vetargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í skjólbelti, í limgerði, í þyrpingar, í skógrækt eða sem stakstæð tré.
Reynsla
Þrjár plöntur á mismunandi aldri eru til í Lystigarðinum. Þrífast vel. Fyrst nefnd í gróðursetningu 1957, en er líklega víða um land. Nokkuð plantað í garða á Akureyri og þrífst bærilega.