Pinus contorta

Ættkvísl
Pinus
Nafn
contorta
Íslenskt nafn
Stafafura
Ætt
Þallarætt (Pinaceae).
Lífsform
Sígrænt tré.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Kk reklar gulir, appelsínugulir, rauðir.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
10-25 m
Vaxtarlag
Fremur lítið tré með hnöttótta krónu eða grannt keilulaga tré, 10-25(-35) m hátt. Stakstæð tré eru greinótt næstum niður við jörð, en greinalaus neðantil ef þau eru þétt saman.
Lýsing
Börkur þunnur eða allt að 2 sm þykkur, rauðbrúnn til svartbrúnn, fremur sléttur til hrjúfur, með smáum hreistrum, nálar yfirleitt 2 saman, dökkgrænar til gulgrænar, 3-5 mm langar, snúnar, lifa í 5-9 ár, slíður 4-6 mm löng. Könglar egglaga, yfirleitt bognir, 3-6 sm langir, opnast annað hvort strax eftir þroskun og fræin fljúga burt og detta af eða eru lokaðir í mörg ár og sleppa fræjum smám saman. Köngulhreistur mjó, purpurabrún, með ljós- eða grábrúnan skjöld og með oddhvassan brodd/þyrni, með 1-2 sm langan væng sem er breiðastur um miðju.
Uppruni
NV Ameríka.
Harka
7
Heimildir
7, H.Kr. 2010 Íslenska plöntuhandbókin.
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í skógrækt og víðar.
Reynsla
Ekki til í Lystigarðinum. Stafafura er ræktuð víða hérlendis og sáir sér auðveldlega út í mólendið í kringum þá staði þar sem hún hefur verið gróðursett.