Polygonum aviculare

Ættkvísl
Polygonum
Nafn
aviculare
Ssp./var
ssp. boreale
Höfundur undirteg.
(Lange) Karlson
Íslenskt nafn
Blóðarfi
Ætt
Súruætt (Polygonaceae).
Lífsform
Einær jurt- illgresi.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Grænn, hvítur, bleikur.
Blómgunartími
Júní - október.
Hæð
6-50(-90) sm
Vaxtarlag
Einær jurt með 1-7 stöngla, jarðlæga eða uppsveigða, greinist aðallega við grunninn, 6-50(-90 sm. Himnupípan 3,5-7 mm, neðsti hlutinn sívalur til treklaga, efsti hlutinn eyðist fljótt, næstum alveg sumargrænn, laufleggur 7-9 mm, blaðkan græn, hliðaæðar sýnilegar en ekki upphleyptar á neðra borði, öfugegglaga-spaðalaga eða öfuglensulaga, (12,5-)16-44(-55) x (4-)6-18(-22) mm, 2-4(-5,5) sinnum lengri en þau eru breið, snubbótt eða bogadregin. Stöngullauf (1,1-)1,3-2,5(-3) sinnum lengri en greinalaufin.
Lýsing
Blómskúfar jafnt dreifðir, sjaldan margir saman á stöngul- eða greinaendum, (3-)4-7 blóma. Blómleggir vaxa yfirleitt úr himnupípunni, 2-5 mm. Blómhlífin 3,3-5,5 mm, 1,6-2,8 sinnum lengri en hún er breið. Krónupípan 25-35(-39)% af lengd blómhlífarinnar, blómhlífarflipar skarast, grænir með hvítan eða bleikan jaðar, öfugegglaga, flatir eða bognir út á við á aldininu, ytri blómhlífarflipar ekki sekklaga við grunninn, æðarnar greinóttar, þykkar, fræflar 6-8. Hnetur umluktar blómhlífinni, dökkbrúnar, egglaga, 3-strendar, 82,5-92,7-4(-4,2) mm, fletirnir misstórir, íhvolfir, beinar í toppinn, gróf langrákótt-hnúskótt. Hnetur þroskast sjaldan seint á árinu.
Uppruni
Grænland, Nýfundnaland, Labrador, NV Evrópa (Ísland).
Heimildir
= www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=1&taxon-id=250060724, Flora of North America, www.pfaf.org/user.aspx?LatinName=Polygonum aviculare, https://en.wikipedia.org/wiki/Polygonum-aviculare
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Lækningajurt.
Reynsla
Blóðarfinn er algengt illgresi í matjurtagörðum, meðfram vegum, á bæjarhlöðum, finnst einnig í fjörum.