Populus trichocarpa

Ættkvísl
Populus
Nafn
trichocarpa
Íslenskt nafn
Alaskaösp
Ætt
Víðiætt (Salicaceae).
Samheiti
Populus balsamifera subsp. trichocarpa (Torr. & Gray ex Hook.) Brayshaw
Lífsform
Lauffellandi tré.
Kjörlendi
Sól, (hálfskuggi).
Blómgunartími
Snemma vors.
Hæð
15-25 m
Vaxtarhraði
Hraðvaxta.
Vaxtarlag
Tré allt að 35 m hátt í heimkynnum sínum, krónan gisin, mjó-pýramídalaga, breið-uppsveigð. Börkur sléttur, gulgrár.Árssprotar ólífubrúnir, hárlausir til hærðir, ógreinilega ferstrendir, verða okkurgulgráir, sívalir. Brum 1-1,5 sm löng, mjó egglaga, langydd, kvoðug, hárlaus, mjó.
Lýsing
Lauf 8-25 sm, egglaga til tígullaga-aflöng, mjó-odddregin, grunnur bogadreginn til þverstýfður, leðurkennd, netæðótt, grunntennt, dökkgræn og hárlaus eða næstum hárlaus ofan, hvít eða fölbrún neðan. Laufleggir 3-6 sm langir. Karlreklar 3,5-6 sm, næstum legglausir, blóm með 30-60 fræfla, frjóhnappar fagurrauðir. Kvenreklar 6-15 sm eggleg hærð. Hýðið þrírýmt, hærð.
Uppruni
V N Ameríka.
Harka
5
Heimildir
1, H.Kr. 2010 Íslenska plöntuhandbókin.
Fjölgun
Sáning, sumar- og vetrargræðlingar, rætist auðveldlega.
Notkun/nytjar
Í skjólbelti, í þyrpingar, stakstæð í stóra garða.
Reynsla
Harðgerð, þurftamikil en fljótvaxin. Setur stundum rótarskot.
Yrki og undirteg.
Nokkrir klónar hafa fengið sitt nafn hérlendis og er "Randi" sá sem er mest ræktaður á Akureyri. Talið að yfir 60% af öllum öspum í bænum tilheyri honum. "Kjölur" með bátlaga blöð var einnig til í garðinum og fleiri sem ekki eru nafngreindir.
Útbreiðsla
Alaskaösp hefur verið gróðursett víða þar sem jarðvegur er frjór og rakur. Sáir sér einkum þar sem gróðursvörðurinn er flögóttur.