Potentilla

Nafn
Potentilla
Ssp./var
L.
Yrki form
Pyrenaica
Íslenskt nafn
Runnamura
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Samheiti
P. Farreri Prostrata, P. farreri protrata Hort.,1890.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gullgulur.
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
0,2 m
Vaxtarlag
Jarðlægur runni, allt að 20 sm hár.
Lýsing
Lauf um 2 sm löng, smálauf allt að 3, aflöng-oddbaugótt, græn ofan, blágræn neðan. Blóm 2,5 sm í þvermál, gullgul. Krónublöðin dökkgul neðan (!), blómstrar lengi.
Uppruni
Yrki
Heimildir
1,7
Fjölgun
Sumargræðlingar, 3" græðlingar m. hæl síðsumars.
Notkun/nytjar
Í beð, þyrpingar, í steinhæðir.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1996, er í sólreit 2011.
Yrki og undirteg.
AÐRAR UPPLÝSINGAR: Er hugsanlega úr Pyreneafjöllum er samt sérstakt klón og ekki er hægt að líta á það sem villiafbrigðið v. pyrenaica Willd.