Potentilla

Ættkvísl
Potentilla
Yrki form
'Jeane Salter'
Íslenskt nafn
Rósamura
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
P × hybrida 'Jeane Salter'
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Appelsínugul með skærrauða slikju.
Blómgunartími
Júní til september.
Hæð
-45 sm
Vaxtarlag
Þýfður fjölæringur.
Lýsing
Fjölæringur, 30-45 sm hár og 60 sm breiður, sem myndar þúfur. Laufin minna á jarðarberjalauf. Blómin appelsínugul með skarlatsrauða slikju, einföld.
Uppruni
Yrki.
Heimildir
http://www.perhillplants,co,uk, http://www.gardenology.org
Fjölgun
Skipting.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, beð, kanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, hafa lifað þar frá 1982 a.m.k. Harðgerðar og þrífast vel.