Potentilla

Ættkvísl
Potentilla
Yrki form
William Rollison
Íslenskt nafn
Rósamura
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Potentilla × hybrida William Rollison
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi.
Blómalitur
Skær- og djúp-appelsínugulur með skarlatsrauðri slikju.
Blómgunartími
Júní-ágúst.
Hæð
- 40 sm
Vaxtarhraði
Meðalvaxtarhraði.
Vaxtarlag
Þýfður fjölæringur.
Lýsing
Fjölæringur, 30-40 sm hár og 35-45 sm breiður. Laufið þrífingrað eins og á jarðarberjaplöntu, djúpgræn. Blómin nokkur saman á blómstönglinum, hálffyllt, krónublöðin skær- og djúp-appelsíugul með skarlatsrauðri slikju og gul á bakhliðinni, með gula miðju.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Mjölsveppur er stundum til vandræða.
Harka
3
Heimildir
1, http://www.chipchaseplants.co.uk, http://www.perennials.com, http://www.prime-perennials.co.uk
Fjölgun
Skipting.
Notkun/nytjar
Í beð, steinhæðir, kanta. Klippið burt fölnuð blóm því þá eru meiri möguleikar að plantan beri fleiri blóm. Það er hægt að klippa plöntuna niður að blómgun lokinni svo að nýtt lauf vaxi. Það er hægt að skipta plöntunni snemma vors eða á haustin.Falleg að hafa með grænu grasi. Í ker, í beðkanta, til afskurðar.Klippið alveg niður að vorinu.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta frá því fyrir 1982, harðgerð, þrífst vel.